5 Desember 2017 10:14

Tveir ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið bifreiðum sínum undir áhrifum áfengis í liðinni viku.   Eins og alltaf mun lögregla leggja aukna áherslu á eftirlit með ástandi ökumanna í umferðinni í desember en í gegn um árin hefur aðventan með tilheyrandi jólagleði leitt til þess að fleiri virðast laumast af stað á bílum sínum án þess að vera í ástandi til þess.

26 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í vikunni. Að venju ljúka þessir einstaklingar málum sínum með greiðslu sektar, flestir á vettvangi brots, og bætist sú upphæð við heildartölu álagðra sekta við embættið en hún nemur nú rúmlega 140 milljónum það sem af er árs.  Hlutfall erlendra ferðamanna í þessum sektum er þannig að 1419 einstaklingar eru með íslenska kennitölu en 1425 eru án íslenskrar kennitölu.

7 slys voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku. Í einu þeirra slasaðist tamningamaður á fæti þegar hestur sló hann illa.  Viðkomandi var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.   Þrjú slys urðu með þeim hætti að gangandi vegfarandi féll í hálku en engin aðilanna  er talinn alvarlega slasaður.

Kona féll í hlíðum Ingólfsfjalls þann 27. nóvember s.l. Hún var slösuð á baki og var kallað eftir aðstoð þyrlu LHG til að flytja hana úr brekkunni og á sjúkrahús í Reykjavík.  Á meðan á aðgerðum stóð varð vart við drón á flugi í grend við slysstað, í fráflugshæð þyrlunnar.   Þegar björgunaraðgerðum lauk var flygildið elt og haldlagt af flugmönnum LHG sem jafnframt munu hafa tilkynnt flugmálayfirvöldum um alvarlegt flugatvik enda ljóst að flug dróna í kring um þyrluna skapar verulega hættu á slysi ef flygildi lendir í spöðum þyrlunnar.

Karlmaður slasaðist 27. nóvember s.l. þegar hann féll af vélsleða í skipulagðri ferð á Mýrdalsjökli.  Hann var talinn hafa farið úr axlarlið og var fluttur af jöklinum af ferðaþjónustufyrirtækinu og áfram undir læknishendur með sjúkrabifreið.

Í haust hafa verið haldnar svokallaðar almannavarnarvikur í sveitarfélögum umdæmisins. Í þessum vikum hafa fulltrúar lögreglu unnið með sveitarfélögunum að áhættugreiningu í sveitarfélaginu, gerð áætlunar um langtímaviðbrögð við náttúruhamförum ásamt því að íbúafundir hafa verið haldnir í hverju umdmæmi meðaðkomu sérfræðinga frá Veðurstofu sem frætt hafa íbúa um þá náttúruvá sem helst er þekkt í hverju sveitarfélagi.   Stefnt er að því að ljúka þessari vinnu í janúar 2018.