4 Júní 2018 16:07

35 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku. Einn þeirra, bandarísk kona sem er hér á ferðalagi, var stöðvuð við Gígjukvísl á 156 km/klst hraða þar sem leyfður hraði er 90 km/klst. Hún svipt ökurétti í 2 mánuði og sektuð um 230 þúsund krónur. Gerði sektina strax upp og fékk því 25% afslátt af henni eins og reglur segja til um þegar að umferðarlagabrotum kemur.

Laugardaginn 2. júní voru tveir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum áfengis við akstur bifreiða sinna.   Annar á Selfossi en hinn á Hellu.

3 ökumenn voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur bifreiða sinna. Einn fyrir að nota farsíma án handfráls búnaðar og einn fyrir að aka sviptur ökuréttindum.

Skráningarnúmer vöru tekin af 4 bifreiðum þar sem þær reyndust ótryggðar í umferðinni.

5 sinnum í liðinni viku var lögreglu tilkynnt um laus hross á eða við veg í umdæminu. Í öllum tilfellum var haft samband við eigendur eða umráðamenn og brugðust þeir vel við og komu hrossunum í skjól.   Þá bárust nokkrar tilkynningar um sauðfé við vegi og ljóst er að búfjáreigendur þurfa að taka sig á í vörslu húsdýra sinna.