27 Desember 2021 11:01

4 umferðarslys voru tilkynnt á tímabilinu frá 15:20 til 17:38 þann 20.12 s.l.   Fyrst var bílvelta á Þjórsárdalsvegi þar sem meiðsl á ökumanni bifreiðar sem valt voru minniháttar.  Kl. 16:45 valt bifreið út af Biskupstungnabraut.  Ökumaður einn í bílnum og taldi sig ekki þurfa flutning með sjúkrabifreið af vettvangi.   Kl. 16:54 valt bifreið á Eyrabakkavegi og í henni par með tvö börn.  Þau flutt til aðhlynningar á heilbrigðisstofnun en ekki talin alvarlega slösuð.  Loks varð árekstur tveggja bifreiða á Suðurlandsvegi í Flóa þar sem saman rákust jeppi og jepplingur sem ekið var úr gagnstæðum áttum.  Ökumaður einn í jepplingnum sem valt og endaði á hvolfi úti í vatnsfylltum skurði.   Hann aðstoðaður af vegfarendum út úr bílnum og er ekki alvarlega slasaður.   Ökumaður jeppabifreiðarinnar fastklemmdur, alvarlega slasaður,  í braki bílsins utan vegar og þurfti tækjabúnað slökkviliðs Brunavarna Árnessýslu til að losa hann.  Farþegi í sama bíl slapp lítið meiddur.   Svo virðist sem ökumaður jepplingsins hafi verið að aka fram úr röð bifreiða og ekki náð að ljúka framúrakstrinum og því lent framan á jeppanum.   Tjón varð á a.m.k. tveimur bílum öðrum vegna braks sem þeyttist frá bifreiðunum sem í árekstrinum lentu.

Þá brotnaði fullorðin kona á hendi þegar bifreið sem ekið var á bifreiðastæði aftan við Ráðhús Árborgar á Selfossi rakst á hana.   Hún flutt til aðhlynningar á heilbrigðisstofnun.

Ökumaður sem lögreglumenn stöðvuðu á Selfossi þann 26. desember s.l. á Eyravegi á Selfossi vegna vöntunar á skráningarnúmeri aftan á bifreiðina reyndist bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna.  Að auki sviptur ökurétti vegna fyrri brota.

Annar aðili sem tilkynnt var um á Suðurlandsvegi þann 22.12 eftir að tilkynnt hafði verið um undarlegt aksturslag hans reyndist ölvaður og stúlka sem stöðvuð var í reglubundnu eftirliti á Selfossi þann 20.12 er grunuð um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna við aksturinn.

6 ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt.  Af þeim 4 í Rangárþingi.

Ökumaður vöruflutningabifreiðar sem stöðvuð var þann 21.12.  á Suðurlandsvegi við Reykjavík reyndist með útrunnin ökuréttindi.  Bifreiðin kyrrsett og honum gert að útvega bílstjóra með gild réttindi.   Annar ökumaður stöðvaður á vörubifreið á sama stað reyndist án ökumannskorts og fær kæru fyrir það.  Þá sætir rekstraraðili einnig kæru vegna brotsins.

Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu var kallað til þegar eldur kom upp í kertaskreytingu í íbúðarhúsi á Selfossi aðfaranótt 21.12 Íbúar hússins höfðu vaknað við flaut reykskynjara og náðu að slökkva sjálf eldinn en nokkurt tjón varð af reyk í íbúðinni.  Fólki varð ekki meint af.

Eldur kom upp í íbúðarhúsnæði  í fjölbýli á Höfn að kvöldi 23.12 Snarráður starfsmaður félagsþjónustu varð eldsins var og slökkti eldinn með því að bera vatn á hann en eldurinn var í gardínu sem fallið hafði niður í rúm.   Ekki kom til þess að slökkvilið væri kallað til og tjón var minniháttar.  Húsráðandi var hinsvegar fluttur á sjúkrastofnun til aðhlynningar.