15 Febrúar 2021 10:07

Nokkuð var um aðstoðarbeiðnir vegna vatnselgs austan til í umdæminu í gær en miklar rigningar gerði þar eystra.   Aurskriða féll við bæinn Hof í Öræfum, fór þar í gegn um áratuga gamlan skógarreit og olli skemmdum á honum og girðingum við bæinn en við fyrstu sýn ekki að sjá annað tjón.  Það verður skoðað betur í björtu í dag.  Á Höfn safnaðist víða upp vantselgur á götum og hafði fráveitukerfi illa við úrkomunni.   Ekki er þó vitað um tjón vegna þessa.

19 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi. Hraðast ók karlmaður fæddur 2002 á Eyrarbakkavegi en hraði bifreiðar hans mældist 134 km/klst þar sem leyfður hámarkshraði er 90 km.   Sekt við broti sem þessu nemur 120 þúsundum króna og 2 punktum í ökuferilsskrá.   Þrír þeirra sem kærðir voru kærðir fyrir að aka of hratt á Suðurlandsvegi við Þingborg í Flóa en þar er 70 km/klst hámarkshraði. Einn þeirra mlldist á 122 km/klst hraða og situr uppi með 110 þúsund króna sekt og 3 punkta í ökuferilsskrá.

2 ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið bifreiðum sínum undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna. Annar þeirra var sviptur ökurétti til bráðabirgða en hann á fyrir sambærileg ólokin mál í vinnslu.

Ökumaður flutningabíls var kærður fyrir að flytja of þungan farm um Suðurlandsveg við Hellu og má hann búast við sekt vegna brots síns.   Mikilvægt er að fylgjast með breytingum á gildandi þungatakmörkunum á vegum nú þegar miklar sveiflur eru úr frosti og í hita eða öfugt og líkur á tjóni á vegum því miklar.

19 stór ökutæki voru tekin til vegaskoðunar. 2 eftirvagnar vörubifreiða reyndust ekki uppfylla skilyrði hvað hjóla og ljósabúnað varðar og voru boðaðir á skoðunarstofu til skoðunar. Önnur ökutæki reyndust í lagi.

Ökumaður lítillar fólksbifreiðar var stöðvaður við akstur bifreiðar sinnar á Selfossi þann 10. febrúar. Munstur á 3 af 4 hjólbörðum bifreiðar hans var slitið upp og við blasti sléttur slitflötur sem á betur heima á formula ökutæki á þurrum sumardegi en í hálku að vetri til á Selfossi.

8 ökumenn voru í liðinni viku kærðir fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur bifreiða sinna.   40 þúsund króna sekt er við slíku broti.

Skráningarnúmer voru fjarlægð af 4 ökutækjum sem reyndust ótryggð í umferðinni

Erlendur ferðamaður sem átti að vera í sóttkví en ferðaðist austur um umdæmið á puttanum var fluttur í sóttvarnarhús í Reykjavík.   Honum jafnframt gert að greiða sekt vegna brots síns.

Kona féll um 2,5 metra niður á steingólf, af vinnupalli, við störf sín í uppsveitum Árnessýslu þann 12. febrúar. Hún flutt til aðhlynningar á sjúkrahús í Reykjavík. Málið til rannsóknar hjá lögreglu og vinnueftirliti.

Enn er ófeðraður timburskúr sem hefur fallið af flutningabíl/vagni á Suðurstrandavegi að kvöldi 8. febrúar s.l.  Þeir sem geta gefið upplýsingar um tilkomu skúrsins þarna eru beðnir að hafa samband við lögreglu.

Höfð voru afskipti af 6 börnum, öllum fæddum 2007, við búðarhnupl í Krónunni á Selfossi um miðjan dag í gær, 14. febrúar.   Börnin færð á lögreglustöð og barnavernd, ásamt foreldrum þeirra allra boðuð á stöð þar sem greitt var úr málunum og fóru börnin síðan frjáls ferða sinna í fylgd foreldra..   Andvirði þýfisins nemur tugum þúsunda. Að rannsókn lokinni verður málið sent viðkomandi barnavernd til frekari vinnslu.