28 Október 2019 09:26

12 umferðarslys eru skráð í umdæmi Lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni viku.   Í Gærmorgun um kl. 09:30 fór bifreið út af vegi við Hunkubakka og valt.   Tveir menn voru í bílnum og var þyrla LHG kölluð til til að flytja þá af vettvangi.   Þegar þetta er skrifað liggja ekki fyrir upplýsingar um aðdraganda slyssins eða ástand þeirra slösuðu.  Þann 24. október fauk bifreið út af Suðurlandsvegi við Núpsstað. Ökumaður var nýkominn til landsins með bifreiðna með Norrænu til Seyðisfjarðar og eru meiðsl hans minniháttar.   Sama dag fauk trailer utan í vegrið á Suðurlandsvegi við Hveradali.   Loka þurfti veginum um tíma meðan verið var að greiða úr því.   Sendibifreið fauk út af veginum skammt vestan Almannaskarðs þann 25. október. Ökumaður hennar er ekki talinn alvarlega slasaður.   Þann sama dag valt bifreið út af Suðurlandsvegi við Kögunarhól.    Bifreiðin fór tvær veltur en ökumaðurinn bar sig vel og taldi meiðsl sín minniháttar. Ökumenn tveggja fjórhjóla sem rákust saman skammt frá Sólheimum þennan sama dag slösuðust eitthvað.   Ekki liggja fyrir upplýsingar um alvarleika meiðsla þeirra ennþá.

Ferðamenn í tveimur aðskildum málum höfðu samband við lögreglu í gær og óskuðu aðstoðar þar sem þeir höfðu fest bifreiðar sínar á Kjalvegi.   Þeim var komið í samband við dráttarbílaþjónustu sem aðstoðaði þá við að komast til byggða.

92 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í vikunni. Sektarupphæðin samanlagt rúmlega 7,5 milljónir og af henni eiga erlendir ferðamenn um 2/3

5 voru kærðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur bifreiða sinna og einn þeirra var að auki í símanum án handfrjáls búnaðar. Svo var reyndar um tvo aðra en báðir höfðu þó þá málsvörn að hafa spennt á sig beltin.