5 September 2017 12:48

Í liðinni viku var 71 ökumaður kærður fyrir að aka of hratt í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi. Flestir eru á hraðabilinu frá 121 til 130 km/klst þar sem leyfður hraði er 90 km/klst.  Ökumenn eru hvattir til þess að virða reglur um hámarkshraða og hafa í huga að eftirlit lögreglu með þessum brotum er viðvarandi allan sólarhringin.  Skýringin á því er einföld,  viðmiðunarreglan er sú að ef tekst að lækka meðal ökuhraða á 90 km vegi um 1 km minnka líkurnar á alvarlegu umferðarslysi um 3%  Það er því til mikils að vinna.  Nóg tekur umferðin samt.

Tveir voru kærðir vegna meintrar ölvunar við akstur, báðir á þjóðvegi 1, annar á Breiðamerkursandi og hinn við Kirkjubæjarklaustur.  Í báðum tilfellum erlendir ferðamenn.

Þann 1. september varð barn, á sjöunda ári, á reiðhjóli, fyrir bíl í botnlanga í íbúðargötu á Selfossi. Barnið var flutt til aðhlynningar á sjúkrahúsi  en það hlaut skurð og mar á fæti  af árekstrinum en er ekki talið alvarlega slasað.

Drengur er talinn úlnliðsbrotinn eftir að hann féll við boltaleik á leiksvæði við Vallaskóla á Selfossi þann 29. ágúst s.l.

Hestamaður er slasaður á baki eftir fall af hesti sínum í reiðtúr í Gnúpverjahreppi.   Hann og félagi hans voru án farsíma þegar slysið varð og þurfti félaginn að ríða heim að næsta bæ til að sækja aðstoð.   Maðurinn var fluttur á sjúkrahús en hafði kólnað nokkuð við það að bíða aðstoðarinnar.

6 tilkynningar bárust lögreglu um að ekið hafi verið á lömb eða kindur við þjóðveg 1. Í einu tilfellanna hafði verið ekið á 2 kindur skammt frá Landvegamótum en í hinum tilfellunum, sem áttu sér stað á mismunandi stöðum alla leið austur fyrir Höfn í Hornafirði, var ekið á eina kind eða lamb.

Talsvert magn, á þriðja kíló, af marihuana fannst við leit í húsi í Árnessýslu s.l. föstudag.  Húsráðandi kannaðist við eiga efnin og kvaðst vera að rækta þau til eigin neyslu.  Efnin haldlögð og kærði laus að lokinni skýrslutöku.

Nokkuð virðist um að veitinga og gististaðir séu án leyfa, ýmist ekki sótt um rekstrarleyfi eða þau runnið út án þess að hugað hafi verið að endurnýjun þeirra.   Komi slík mál upp er lögreglu skylt að loka án frekari viðvarana þeim rekstri sem um er að ræða og ekki að finna í lögunum heimild til hennar til að gefa undanþágu eða fresti frá aðgerðum sínum.   Því verður gjarnan mikið fát hjá rekstraraðilum þegar lögregla kemur á staðinn,  gestir bíða gistingar sinnar í gistihúsunum og hópar eiga bókaðann veislumálsverðinn sinn og í hvorugu tilfellanna auðvelt að komast í annað með stuttum fyrirvara.  Rekstraraðilar eru hvattir til að ganga frá sínum málum til að ekki komi til afskipta lögreglu af rekstri þeirra.