13 Nóvember 2017 13:39

Nú ber svo við að í síðustu viku voru einungis 11 ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt. Af þeim voru 8 erlendir ferðamenn.   Hinsvegar voru skráningarnúmer tekin af 6 ökutækjum vegna þess að þau reyndust ótryggð í umferðinni.  Í einu tilfelli reyndist ökumaður ótryggðs ökutækis ölvaður.

4 ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið undiráhrifum áfengis í liðinni viku og er einn þeirra, hlaupari mikill sem reyndi að komast undan lögreglu á hlaupum um götur Selfoss, grunaður um að hafa einnig verið undir áhrifum fíkniefna við aksturinn.  Annar var stöðvaður á bifhjóli á Höfn eftir að lögregla hafði ekið á eftir honum um 4 km leið án þess að hann sinnti stöðvunarmerkjum hennar. Hann reyndist undir áhrifum áfengis og svaraði að auki jákvætt á fíkniefni í þvagsýni sem hann lét í té.   Ökumaður fólksbifreiðar sem hann ók á víravegrið í Kömbum þann 6. nóvember s.l.  er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna.  Ekki urðu  slys á fólki við áreksturinn en hinsvegar þurfti dráttarbifreið til að flytja ökutækið af vettvangi.  2 aðrir ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið bifreiðum sinum undir áhrifum fíkniefna í vikunni.

Alls voru höfð afskipti af 61 rjúpnaveiðimanni um liðna helgi. Farið var um Fjallabak nyrðra, Uppsveitir Árnessýslu og í og við Þjóðgarðinn á Þingvöllum. Voru veiðimenn almennt til fyrirmyndar og með sín leyfi í lagi. Skotvopn voru haldlögð hjá fjórum veiðimönnum, tveimur þar sem skotvopnaleyfi þeirra voru úr gildi.  Hjá öðrum tveimur veiðimönnum voru skotvopn haldlögð þar sem kom í ljós við skoðun að fleiri skot voru í skotgeymi en mega vera við veiðar, en í bæði skiptin voru byssurnar í bifreiðum veiðimanna og skotin í skotgeymi. Einn veiðimaður var svo staðinn að veiðum innan þjóðgarðsmarka Þingvalla. Voru byssa, skotfæri og afli haldlagður. Mikil umferð veiðimanna var um þessi svæði enda veður mjög gott.  Mikilvægt er að veiðimenn gangi úr skugga um að skotvopnaleyfi þeirra séu í gildi, og að þeir séu með útprentuð veiðikort eða veiðikortin vistuð í síma sínum þannig að auðvelt sé að kalla þau fram sé þess óskað.

Umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurlandi hafði afskipti af ökumanni hópbifreiðar á Suðurstrandarvegi.  Ökumaðurinn, erlendur, var ekki með ökuréttindi til aksturs hópbifreiða og einnig var ekki til staðar rekstarleyfi til farþegaflutninga.  Frekari akstur var því stöðvaður og farþegunum 14 að tölu útvegaður annar farkostur og annar ökumaður til að ljúka ferð sinni.

34 farþegar rútubifreiðar sluppu að mestu ómeiddir þegar bifreiðin, sem ekið var austur Skaftafellsveg þann 7. nóvember s.l., fór yfir þjóðveg 1 og þar fram af kanti. Einn þurfti þó að flytja með sjúkrabifreið af vettvangi vegna áverka á baki en hann mun hafa hrasað eftir að óhappið varð.  Þá slasaðst ökumaður vöruflutningabíls alvarlega þann 6. nóvember s.l. þegar bifreið hans lenti út af veginum um Hellisheiði,  fór eftir vegöxlinni um tiltölulega langan veg  þar sem ökumaðurinn kastaðist út úr stýrishúsi hennar um glugga farþegamegin en eftir það fór bifreiðin aftur þvert upp á veg og festist í víravegriði sem þar skilur akstursstefnur.