11 Júní 2018 13:38

Í liðinni viku voru höfð afskipti af fimm ökumönnum sem ýmist voru grunaðir um að aka bifreiðum sínum undir áhrifum áfengis eða fíkniefna eða hvorutveggja í senn. Þrír þeirra voru á Selfossi að næturlagi nú um liðna helgi og svöruðu prófunum jákvætt bæði vegna áfengis og fíkniefna en einn í Hveragerði. Sá er grunaður um að hafa, þriðjudaginn 5. júní, ekið ölvaður á rafmagnskassa við heimili sitt og valdið þannig tjóni á kassanum og einnig á runnagróðri sem á vegi hans varð.   Þennan sama dag var fimmti aðilinn handtekinn á Selfossi en sá er grunaður um að hafa ekið bifreið sinni undir áhrifum fíkniefna.

31 ökumaður var kærður fyrir að aka of hratt í umdæminu á þessu sama tímabili. 4 á þjóðvegi 1 á Mýrum, 3 á Skeiðarársandi, 1 í Reynishverfisvegi við Vík þar sem leyfður hámarkshraði er 50 km/klst og 11 á þjóðvegi 1 í Rangárvallasýslu og aðliggjandi vegum þar.   12 voru síðan stöðvaðir í Árnessýslu á sama tíma, bæði á þjóðvegi 1 og í uppsveitum.

Skráningarnúmer voru tekin af 4 bifreiðum sem reyndust ótryggðar í umferðinni.

9 slys eru tilkynnt til lögreglu. Beinbrot hlutust í þremur þeirra. Þann 1. júní s.l. féll stúlka fædd 2012 á leikvelli á Selfossi og brotnaði á báðum höndum við það.   Þann 5. júní féll maður af þaki byggingar í Hveragerði og brotnaði á fæti við það.   Ökumaður mótorhjóls er talinn viðbeinsbrotinn eftir að hann féll á hjóli sínu við akstur við Skarfanes í Landsveit í gær.

Gaskútur sprakk í meðförum ferðamanns í Skaftafelli seint í gærkvöldi. Ekki liggja fyrir upplýsingar um tildrög þess eða afleiðingar þegar þetta er ritað.

Aðfaranótt laugardagsins 9. júní varð árekstur tveggja bifreiða á gatnamótum Austurvegar og Reynivalla á Selfossi. Önnur bifreiðin kastaðist á umferðarljós við gangbraut á Austurvegi og skemmdi þau. Meiðsl aðila eru ekki talin alvarleg. Um kvöldmat kvöldið áður varð einnig árekstur á Austurvegi þegar bifreið var ekið út frá Skalla inn á Austurveginn í veg fyrir bifreið sem ekið var austur Austurveg, fram með bifreið sem dró hjólhýsi og hugðist beygja til hægri inn á þetta sama stæði við Skalla. Ekki urðu alvarleg meiðsl á fólki.

Seinni part laugardags hafði lögregla afskipti af konu sem týndi kríuegg í kríuvarpi við Óseyrarbrú en hún reyndist hafa týnt um 200 egg.   Kvaðst hafa gert það árum saman á þessum stað. Eggin voru haldlögð og málið er nú til rannsóknar.   Ákvæði laga um vernd friðun og veiðar heimila eggjatöku í kríuvarpi fram til 15. júní en skoða þarf hvort eggjatýnslan hafi farið fram innan fuglafriðlands.

Unglingsstúlka fór af heimili sínu á Suðurlandi í liðinni viku með félaga sínum, manni um tvítugt, til Reykjavíkur en sá sótti hana á bíl.   Grunur leikur á að félaginn hafi brotið þar gegn henni kynferðislega en kynferðismök við börn yngri en 15 ára eru refsiverð sem og sú athöfn að koma barni, sem er ósjálfráða fyrir æsku sakir, undan valdi eða umsjá foreldra eða forráðamanna.  Málið er til rannsóknar hjá lögreglu en nýtilkomnar eftirlitsmyndavélar sem skrá skráningarnúmer ökutækja sem framhjá þeim er ekið flýtti mjög fyrir því að unnt væri að staðsetja hvar stúlkuna væri að finna.