25 Nóvember 2019 12:22

Eins og fram hefur komið varð banaslys í umferðinni á þjóðvegi 1 vestan Hornafjarðarfljóts þann 21. nóvember s.l. Þar varð gangandi vegfarandi fyrir bifreið sem ekið var um þjóðveginn.   Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.

14 önnur umferðarslys/óhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku.   Öll eru þau án alvarlegra meiðsla en ljóst að í einhverjum tilfellum hefur farið betur en á horfðist. Sjúkraflutningsmenn sem unnu á slysavettvangi undir Eyjafjöllum þann 19.11. s.l. þegar rúta fauk þar út af vegi slösuðust þegar vindhviða skellti þeim flötum á veginum. Þeir luku vinnu sinni á vettvangi en meiðslin eru ekki alvarleg. Lögreglumaður sem var utan við veginn fauk um 200 metra leið, taldi sig hafa sett HSK met í 200 metra hlaupi en fær það líklega ekki skráð. Hann slapp ómeiddur.

Þann 20.11. var bifreið ekið á hross á Skeiðunum.   Hrossið drapst við áreksturinn og bifreiðin skemmdist mikið. Ökumaður bifreiðarinnar slapp hinsvegar án meiðsla.

34 ökumenn voru kærðir fyrir að aka of hratt í liðinni viku. Af þeim eru 15 á svæðinu frá Vík og austur um til Hafnar en 19 í vesturhluta umdæmisins þ.e.a.s. frá vík og vestur yfir Hellisheiði.

Á Hvolsvelli var einn ökumaður stöðvaður grunaður um ölvun við akstur að kvöldi 22. nóvember.   Hann fór frjáls ferða sinna að lokinni töku blóðsýnis á lögreglustöð. Einn ökumaður reyndist vera að aka sviptur ökuréttindum og tveir reyndust vera að aka með útrunnin ökuréttindi.

Vegfarandi um Skeiðarársand þann 20.11.19 tók upp myndskeið af ökumanni jepplings sem gerði sér að leik að aka í hringi utan vegar á sandinum.   Myndskeiðið sendi hann lögreglu og reyndist unnt að ná á viðkomandi ökumann og yfirheyra um málsatvik. Sá lauk málinu með því að greiða 150 þúsund króna sekt fyrir brot sitt.