11 Júlí 2018 10:11

Sem fyrr eru það hraðakstursbrotin sem bera uppi fjöldann af kærum vegna umferðarlagabrota í liðinni viku. 39 ökumenn eru kærðir fyrir að aka of hratt, sá sem hraðast ók sætir sviptingu og greiddi sekt sína á vettvangi vegna þeirra 157 km/klst sem hraði ökutækis hans mældist þar sem hann ók Suðurlandsveg til móts við Varmadal að kvöldi 6. júlí s.l.

Fjórir ökumenn voru grunaðir um að aka ölvaðir í liðinni viku. Af þeim voru tveir grunaðir um að vera einnig undir áhrifum fíkniefna.   Annar þeirra hefur ítrekað komist í kast við lögin vegna samskonar brota og var ökutæki han haldlagt með það í huga að það verði gert upptækt til ríkissjóðs vegna fjölda þessara tilvika hjá honum. Hinn ökumaðurinn sem eins var ástatt með ók bifreið sinni út af vegi við Úlfljótsvatn og slasaðist við það sem og farþegi í bifreið hans. Bifreiðinni hafði greinilega verið ekið á töluverðum hraða út af veginum og voru bæði ökumaður og farþegi fluttir með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík. Ökumaður bifreiðar sem ekið var Suðurlandsveg við Hjörleifshöfða er grunaður um akstur undir áhrifum kannabisefna.   Við leit á heimili hans framvísaði hann lítilræði af slíkum efnum sem hann sagði til eigin neyslu.

Að morgni 5. júlí ók ökumaður jepplings gegn lokunum sem settar höfðu verið upp vegna malbikuna rá Austurvegi / Suðurlandsvegi austast á Selfossi.   Maðurinn virti að engu bendingar starfamanna á vinnusvæðinu og áttu þeir fótum fjör að launa vegna framgöngu hans.   Maðurinn var yfirheyrður á lögreglustöð vegna brota sinna sem hann kannaðist við.   Málið er í rannsókn og hafa verið teknar skýrslur af vitnum að atvikinu.   Að rannsókn lokinni mun maðurinn að líkindum sæta ákæru vegna málsins enda það litið alvarlegum augum.

Skráningarnúmer voru tekin af fjórum ökutækjum vegna þess að þau voru ótryggð í umferðinni.

Ökumaður vinnuvélar við vinnu á Höfn var stöðvaður og reyndist réttindalaus.   Hann á von á sekt fyrir brot sitt.

Lögreglumenn voru við eftirlit á hálendinu í umdæminu í liðinni viku.   Þar var rólegt um að litast og sumarumferðin að byrja að taka á sig mynd.   Farið var um Syðra og Nyrðra Fjallabak, Sprengisand í Nýjadal og um Veiðivatnasvæðið auk þess sem farið var í Þórsmörk. Ástand og réttindi ökumanna var kannað og reyndist í fjórum tilfellum tilefni til að gera athugasemdir vegna vöntunar ökumanna í akstri með ferðamenn vegna brota á rekstrarleyfismálum. Viðkomandi mega vænta sekta vegna brota sinna.   Eftirlitsbifreið verður á hálendinu flesta daga fram til ágústloka en eftir það verða farnar ferðir í samræmi við umferð og aðstæður.