15 Nóvember 2021 15:34

31 ökumaður var í liðinni viku kærður fyrir að aka of hratt á Suðurlandi.  Hraðast ók ökumaður fólksbifreiðar á þjóðvegi 1, við Botna í V. Skaftafellssýslu en hraðinn mældist 153 km/klst.   Erlendur ferðamaður sem lauk málinu með greiðslu sektar að upphæð 210 þúsund og sviptingu ökuréttar í 1 mánuð.   29 þessara ökumanna voru á 90 km/klst vegi en einn á vinnusvæði við Ingólfsfjall þar sem 50 km/klst hraði var í gildi og reyndist hann á 90 km/klst hraða.  Annar var innan þéttbýlismarka á Hellu, einnig á 50 km/klst vegi og reyndist sá  á 82 km/klst hraða.

Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur.  Annar þeirra með 7 ára barn í bílnum og var barnavernd í viðkomandi sveitarfélagi því kölluð til.   Bæði málin bíða niðurstöðu rannsókna á áfengismagni í blóði og afgreiðast áfram í samræmi við þá niðurstöðu.

Tvö mál er varða eignaspjöll voru kærð í vikunni.  Annarsvegar veggjakrot í Hveragerði.  Þar taldir unglingar á ferð og einn þeirra staðinn af verki af tjónþola.  Sá 15 ára að aldri.  Í hinu málinu var um að ræða rúðubrot í bifreið í stæði við heimili á Selfossi.   Ekki liggja fyrir upplýsingar um mögulega gerendur í því máli.

Gangandi vegfarandi varð fyrir bifreið sem ekið var afturábak úr stæði við Krónuna á Selfossi þann 13. nóvember s.l.   Féll í götuna og fékk höfuðhögg en er ekki alvarlega slasaður.

Ökumaður fólksbifreiðar hafði samband vð lögreglu þann 9. nóvember eftir að hafa orðið fyrir því að aka á barn á hjóli á Eyrvegi á Selfossi.   Barnið hafði staðið upp og hjólað í burtu án þess að tækist að ræða við það en í ljós kom að um 13 ára stúlku var að ræða og hafði hún leitað til aðstandenda í nærliggjandi húsi og þaðan verið komð undir læknishendur.  Marin en ekki alvarlega slösuð.

Náttúran fór óblíðum höndum um okkur í liðinni viku.   Kínverskur ferðamaður lést þegar hann lenti í brimi í Reynisfjöru þann 10. nóvember s.l. og barst út á haf þar sem hann fannst síðan og var hífður upp í þyrlu landhelgisgæslunnar.   Fluttur á heilsugæslu í Vík og  úrskurðaður látinn þar.   Mikið brim var á þessum tíma við ströndina og reyndist ekki óhætt að sjósetja báta til björgunar.   Ljóst er að þessar aðstæður eru einhverjar þær erfiðustu sem hjálparaðilar lenda í enda gengur þjálfun þeirra út á leit og björgun.   Þarna þurfti að taka ákvörðun um  að aðhafast ekki, vegna þeirrar hættu sem björgunaraðilum var búin,  með þeim björgum sem tiltækar voru að öðru leiti en því að fylgjast með manneskjunni þar sem hún sást fyrst um sinn frá landinu á floti í sjónum.   Engum dylst að slíkt reynir á alla sem að málinu komu.

Jarðskjálfti varð í Vatnafjöllum þann 11. nóvember s.l.  5,2 á Richter að stærð.  Ekki er vitað til þess að tjón hafi orðið en mörgum var nokkuð brugðið.   Eftirskjálftar eru ennþá í gangi nú þegar þetta er ritað en vísindamenn telja að um sniðgengishreyfingar sé að ræða og að þetta tengist ekki mögulegri kvikusöfnun undir Heklu.