12 Febrúar 2018 15:02

Einn er grunaður um að hafa ekið bifreið sinni undir áhrifum fíkniefna í liðinni viku í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi.   Sá hinn sami, sem var á ferð um Stokkseyri,  reyndist einnig sviptur ökurétti vegna fyrri brota.   Þá voru 3 kærðir fyrir að aka bifreiðum sínum ölvaðir, einn á Hellu, annar í Ölfusi þar sem komið var að honum við að reyna að losa bifreið sina úr skafli og sá þriðji á Selfossi.

Veðrið hefur haft mikil áhrif á umferðina í vikunni, stundum getur það verið til bóta því einungis 4 ökumenn eru kærðir fyrir að aka of hratt en afar sjaldgæft er að ekki séu höfð afskipti af fleirum vegna hraðaksturs.   Hinsvegar ber að hafa það í huga að þó ekki sé ekið of hratt miðað við hámarkshraða á vegi þá getur verið að aðstæður leyfi ekki einusinni þann hraða.   Þessi staðreynd virðist flækjast fyrir þeim sem ekki hugnast lokun vega vegna ófærðar.  Undanfarnar vikur höfum við fengið árekstra þar sem ekið er á ökutæki sem eru föst í sköflum og í einu tilviki urðu mjög alvarleg slys á gangandi vegfaranda sem hugðist aðstoða ökumann sem hafði fest bifreið sína þegar sá hafði fest hana í skafli.   Engu breytir hversu stórar eða vel búnar bifreiðar eru, ökumaðurinn þarf að sjá það sem er framundan á vegi, líka björgunaraðila eða vegfarendur sem eru að vinna í kring um ökutæki sem þeir hafa fest eða bilað á vegi.

22 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku. í 2 þeirra urðu minniháttar slys á fólki.