30 Október 2020 13:51
Hertar sóttvarnaráðstafanir taka gildi 31. október og ná til landsins alls.
Helstu takmarkanir eru þessar:
• 10 manna fjöldatakmörk meginregla.
– Heimild fyrir 30 manns í útförum en 10 að hámarki í erfidrykkjum.
– 50 manna hámarksfjöldi í lyfja- og matvöruverslunum en reglur um aukinn fjölda með hliðsjón af stærð húsnæðisins.
– Fjöldatakmarkanir gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug eða störf viðbragðsaðila.
– Fjöldatakmarkanir gilda ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, Alþingis og dómstóla.
• 10 manna fjöldatakmörk eiga ekki við þegar fleiri búa á sama heimili.
• Íþróttir óheimilar.
• Sundlaugum lokað.
• Sviðslistir óheimilar.
• Krám og skemmtistöðum lokað.
• Veitingastaðir með vínveitingaleyfi mega ekki hafa opið lengur en til 21.00.
• Grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
• Börn fædd 2015 og síðar undanþegin 2 metra reglu, fjöldamörkum og grímuskyldu (gilti áður um börn fædd 2005 og síðar).
Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember. Þær verða endurmetnar eftir aðstæðum með hliðsjón af því hvort hægt verði að aflétta þeim fyrr, eða hvort framlenging sé nauðsynleg.