5 Janúar 2011 12:00

Hjólhýsi fauk á hliðina í Grafarvogi um hádegisbil í gær. Óhappið átti sér stað á bifreiðastæði við fjölbýlishús en talsvert rok var í borginni þegar þetta gerðist. Engan sakaði en hjólhýsið er mikið skemmt.