5 Janúar 2009 12:00

Sextán ára piltur, sem var með hlaðna skammbyssu í fórum sínum, hleypti af einu skoti á leikvelli í Háaleitishverfi. Skaut hann á mannlaust hús sem þarna var og fór kúlan í gegnum vegg þess. Fleiri skotum var ekki hleypt af en pilturinn beindi byssunni aldrei að öðrum. Lögreglan ítrekar að skotvopn og skotfæri skal ávallt geyma í læstum, aðskildum hirslum.

Eins og fram hefur komið var pilturinn handtekinn í Breiðholti skömmu fyrir miðnætti á föstudagskvöld.  Hans hafði verið leitað frá því um kvöldmatarleytið sama dag en þá barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að ungur maður vopnaður skotvopni væri á ferðinni í Breiðagerði í Reykjavík. Fjölmennt lið lögreglunnar leitaði að piltinum og naut við það aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra. Hann fannst svo hjá ættingjum sínum í Breiðholti en þeir gerðu lögreglu viðvart og gaf pilturinn sig fram mótþróalaust en hann var síðan færður á viðeigandi stofnun. Pilturinn, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu, var með hlaðna skammbyssu í fórum sínum en hana hafði hann tekið ófrjálsri hendi. Faðir piltsins er skráður fyrir byssunni og hefur fyrir henni tilskilin leyfi.