20 Nóvember 2008 12:00

Hollenskur karlmaður á áttræðisaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Maðurinn var handtekinn á Seyðisfirði í júní en þá fannst þar mikið magn fíkniefna í húsbíl sem kom til landsins með ferjunni Norrænu. Um var að ræða 190 kg af hassi og eitthvað af kókaíni.