10 Nóvember 2022 09:48

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Ægisíðu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ægisíðu í austurátt, á móts við Ægisíðu 105. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 195 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 51 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Ægisíðu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.