30 September 2016 16:01

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Ægisíðu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ægisíðu í vesturátt, að Hofsvallagötu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 76 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Ægisíðu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.