3 Maí 2016 09:28

Brot 41 ökumanns var myndað á Akrabraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Akrabraut í vesturátt, að Hofakri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 77 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrettán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63.

Vöktun lögreglunnar á Akrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.