3 Maí 2017 09:11

Brot 40 ökumanna voru mynduð á Akrabraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Akrabraut í vesturátt, að Hofakri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 59 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 68%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar á Akrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.