4 Maí 2018 09:47

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Akrabraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Akrabraut í vesturátt, að Hofakri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 88 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar á Akrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.