18 Október 2013 12:00

Brot 75 ökumanna voru mynduð á Akrabraut í Garðabæ á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Akrabraut í vesturátt, að Hofakri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 94 ökutæki þessa akstursleið og því ók mikill meirihluti ökumanna, eða 80%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Nítján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Akrabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.