12 Apríl 2017 17:06

Brot 40 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í norðurátt, á móts við Álfaskeið 125. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 87 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 70.

Vöktun lögreglunnar á Álfaskeiði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.