29 Apríl 2022 10:11

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í suðurátt, á móts við Álfaskeið 113-115 (Boðunarkirkjan). Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar á Álfaskeiði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.