18 Mars 2009 12:00

Tuttugu og níu ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Álfaskeiði í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 29 ökumanna mynduð á Álfaskeiði en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, nærri Mávahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 65 ökutæki þessa akstursleið og því óku 45% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði, hraðahindranir og gangbrautir. Þrír óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 53. 

Fyrir nákvæmlega ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Álfaskeiði. Þá óku hlutfallslega fleiri of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 59%. Meðalhraði hinna brotlegu var sömuleiðis hærri í fyrra, eða 46 km/klst. Þróunin á milli ára er því í rétta átt en betur má ef duga skal.