16 Mars 2010 12:00

Brot 29 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í norðurátt, nærri Mávahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 62 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Álfaskeiði var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Álfaskeiði en þá óku hlutfallslega ámóta margir, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 59%.