22 September 2010 12:00

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í norðurátt, á milli Svöluhrauns og Þrastarhrauns. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 77 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Álfaskeiði, en í nágrenninu er Lækjarskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.