20 Apríl 2011 12:00

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í norðurátt, nærri Mávahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 78 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 45-59% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 43-46 km/klst.