6 Apríl 2016 13:00

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í norðurátt, á móts við Álfaskeið 125. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 71 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Álfaskeiði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.