19 Mars 2008 12:00

Brot 54 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í vesturátt, nærri Mávahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fór 91 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var  46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Ellefu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Eftirlit lögreglunnar á Álfaskeiði er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Álfaskeiði var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.