24 Ágúst 2017 15:19

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 80. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 82%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 51 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 69.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.