3 September 2018 11:07

Brot 62 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 80. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 83%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 51 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrjátíu og tveir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á með hraðamælingunni stóð.