20 September 2021 10:34
Brot 40 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 82. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 79 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 51%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrettán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.
Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.