13 Desember 2021 10:21

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 82. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 71 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.