27 Maí 2022 09:28

Brot 43 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 30. Á einni klukkustund, um hádegi, fóru 88 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega helmingur ökumanna, eða 49%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.