16 September 2008 12:00

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, nærri Þverbrekku og Álfaheiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 57 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64. Á þessum stað á Álfhólsvegi eru bæði merktar gangbrautir og merki um vegfarendur og skóla. 

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi, en í nágrenni hans eru bæði Hjallaskóli og Digranesskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.