5 September 2022 16:01

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, við Álfhólsskóla. Á einni og hálfri klukkustund, eftir hádegi, fóru 107 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.