4 Janúar 2024 11:03
Brot 41 ökumanns var myndað á Álfhólsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á móts við Álfhólsveg 28. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 37%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.
Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar í nágrenni við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.