4 Maí 2009 12:00

Fjörutíu og sex voru staðnir að hraðakstri á Álfhólsvegi í Kópavogi á miðvikudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á miðvikudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 46 ökumanna mynduð á Álfhólsvegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, skammt frá gatnamótum Þverbrekku og Álfaheiðar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 99 ökutæki þessa akstursleið og því óku 46% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Álfhólsvegi og þá óku 36% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var svipuð umferð um götuna (107 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var líka 43 km/klst.