27 September 2010 12:00

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, við Digranesskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi, en í nágrenninu eru fyrrnefndur Digranesskóli og einnig Hjallaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.