25 Október 2013 12:00

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í austurátt, á milli Túnbrekku og Tunguheiðar. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 35 ökutæki þessa akstursleið og því ók mikill meirihluti ökumanna, eða 86%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrettán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en Álfhólsskóli er einmitt við götuna.