1 September 2008 12:00

Brot 33 ökumanna voru mynduð í Breiðumýri á Álftanesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðumýri í suðurátt, á móts við Álftanesskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.  

Gangbrautir eru í Breiðumýri og var gangbrautarvörður að störfum á meðan vöktun lögreglunnar stóð. Mörg börn voru á heimleið frá skóla á þessum tíma en akstursskilyrði voru jafnframt slæm, rok og mikil rigning.