3 Mars 2016 09:42

Brot 21 ökumanns var myndað á Álftanesvegi á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, á móts við Garðaholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.