4 Júlí 2016 16:49

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, á móts við Garðaholt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 160 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sjö óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 99.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.