17 Ágúst 2016 11:23

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, á móts við Garðaholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.