29 Mars 2019 12:41

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið (gamla) Álftanesveg í austurátt, á móts við Hrauntungu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.