24 Júní 2020 11:22

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í suðurátt, við Garðaveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 158 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 97.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt á meðan hraðamælingunni stóð.