29 Mars 2021 17:10

Brot 36 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í vesturátt, að gamla Álftanesvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 179 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 82 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.