19 Apríl 2021 17:15

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í vesturátt, að gamla Álftanesvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 176 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 83 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að það var ýmist sól eða éljagangur á meðan hraðamælingunni stóð.