16 Október 2012 12:00

Brot 104 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í vesturátt, við Gálgahraunsveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 229 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.